Sofieskolen
24.september 2015 - Ásta-Halldóra og Valgerður
Sofieskólinn var stofnaður 1964 og verndari hans er Margrét Danadrottning. Skólinn er vel efnum búinn og veitir t.a.m. styrki til ýmissa verkefna innan og utan hans. Skólinn býður uppá sólarhringstilboð til 19 nemenda en í skólanum eru í allt ca. 50 nemendur. Mikael forstöðumaður tók á móti okkur og sýndi okkur nokkrar skólastofur.
http://www.sofieskolen.dk/
Skólinn
Nemendur skólans eru allir með dæmigerða einhverfu og flestir hafa við einhver hegðunarvandamál að glíma. Unnið er eftir hugmyndafræði Teacch og nemendur eiga sínar eigin vinnustöðvar. Nemendur fara lítið útaf skólalóðinni og einnig lítið út á lóðina almennt. Mikael talaði um að ástæðulaust væri fyrir nemendur skólans að sækja verkefni utan hans þar sem ólíklegt væri að þeir myndi gera það í framtíðinni. Þeirra framtíð væri í vernduðu umhverfi.
Teacch
Allar kennslustofur voru settar upp skv vinnukerfi Teacch, hver átti sitt vinnuborð og allt að 4 nem í hverju herbergi.
Viðhorf stjórnenda á skjön við það sem annars var í öðrum skólum. Takmarkið að láta nemendum líða vel í skólanum, ekki gera of miklar kröfur. Nemendur skólans myndu í framtíðinni vera skjólstæðingar skóla og annarra stofnana og því óþarfi að leggja vinnu í að kenna annað !