Kirkebækskolen
Ása kennari við skólann tók á móti okkur. Kirkebækskólinn er sérskóli fyrir mikið líkamlega- og miðlungs- eða alvarlega þroskahefta nemendur. Hann er í húsnæði sem er sérhannað fyrir þennan nemendahóp og var byggður upp úr síðustu aldamótum. Í skólanum eru 57 nemendur í 0.-10. bekk og 6 nemendur í sérúrræði á framhaldsskólastigi. 41 fagmaður vinnur við skólann, 15 stuðningsfulltrúar, 6 sjúkraþjálfarar, 6 iðjuþjálfarar, 3 stjórnendur, 2 tæknimenn, 1 kokkur, 3 deildarstjórar og einn skólaliði.
Nemendur fá kennslu í sömu fögum og grunnskólanemendur í almenna skólanum og sama tímafjölda. Nemendur í 0.-3. bekk fá 30 tíma á viku. 4.-7. bekkur fær 33 tíma og 8.-10. bekkur fær 35 tíma. Í upphafi skóladags hittast allir nemendur og starfsmenn í morgunsöng á miðrými. Á skólatíma er einnig boðið upp á iðju- og sjúkraþjálfun og frístund. Sama húsnæði er notað fyrir skóla og frístund. Heimkeyrsla er á fjórum mismunandi tímum frá kl. 14 – 17.
Kirkebækskólinn lítur á að þróun máls og boðskipta sé ævilangt ferli og eigi að byrja að vinna með það eins fljótt og mögulegt er. Boðskipti er ekki bara fag á stundatöflu heldur eigi einstaklingurinn ávalt að hafa aðgang að boðskiptakerfi sem hentar honum hverju sinni, til dæmis hlutir, myndir, Tákn með tali, PECS, Bliss og sjónrænar vísbendingar. Augnstýrðar tölvur, talvélar og spjaldtölvur eru einnig notaðar.
Námsefninu er skipt niður í þriggja vikna lotur. Þá er unnið með þemað í öllum fögum, t.d. risaeðlur eða víkingar. Góður gagnagrunnur er á bókasafni. Safnkassar eins og skólabyrjun, þegar nemandi fellur frá, ýmsar sögur og ýmis þemaefni. List- og verkgreinar eru kenndar af bekkjarkennurum í bekkjarstofum. Sérhæfð sundlaug og búnaður er í skólahúsnæðinu, en íþróttaaðstaða er á miðrými við inngang skólans. Umhverfis skólann er upplifunar- og skynjunargarður sem gengið er út í beint úr hverri bekkjarstofu.
Allir nemendur skólans hafa teymi fagfólks sem vinnur með málefni þeirra og funda þrisvar á ári. Nokkrir nemendur skólans hafa notandastýrða persónulega þjónustu, starfsmann sem er ráðinn af foreldrum t.d. hjúkrunarfræðingur.
Finna Birna Steinsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Heiða Björk Vignisdóttir
Margrét Valgerður Pálsdóttir