Tunaskolan
Skólastjóri Sérskólans við Tunaskólan, Håkan Backlund tók á móti okkur. [email protected] Tunaskólinn er í raun þrír skólar með þrem skólastjórum en ein skrifstofa sem þjónar öllum skólunum. Yngsta- og miðstig er einn skólinn, Elstastig annar og sá þriðji er Sérskólinn sem við kynntum okkur. Næsta ár bætist fjórði skólinn við sem er Heyrnleysingjaskóli. Í dag eru rúmlega 700 nemendur í öllum skólanum en verða yfir 800 þegar síðasti skólinn bætist við. Unnið er að miklum endurbótum og viðbyggingu fyrir þessa sameiningu. Í Sérskólanum er 47 nemendur sem dreifast á forskóla og 1. til 9.bekk. Það er mikil breidd í nemendahópnum, 10- 12 nemendur í bekk. Flestir með ADHD og einhverfu og litla til miðlungs þroskahömlun. Þrír bekkir falla þó undir treningsskolan (þjálfunarskóla) þar sem nemendur eru með miðlungs eða meiri þroska- og hreyfihömlun. Í þeim bekkjum eru 4 - 5 nemendur. Skóladegi líkur kl. 13:20 en nemendur eru mis lengi í skóladagvistinni. Skólastofurnar eru notaðar undir skóladagvist og sömu stuðningsfulltrúar/starfsmenn vinna við hana. Námsskrá fyrir allan grunnskólann þar með sérskólann og þjálfunarskólann er sameiginleg fyrir allt landið og er gefin út af menntamálaráðuneyti. Í nýrri námsskrá sem kom út 2011 er meira hugað að námi þessa hóps en í fyrri námsskrá, var meira miðuð við ummönnum áður. Með nýju námsskránni er einungis hægt að ráða sérkennara í sérskóla. Það hefur skapað vandamál því erfitt er að fá svo marga sérkennara. Almennir kennarar fá einungis ráðningu eina önn í senn. Í Tunaskólanum hefur Sérskólinn afmakrað svæði þar sem eru bekkjarstofur, nokkur einstaklingsrými og stofur fyrir smærri hópa. Nemendur taka þátt í sameiginlegum atburðum í skólanum þar sem þeir dreifast þá með sínum jafnöldrum úr hinum skólunum. Einnig taka nemendur þátt í ýmsum sameiginlegum tímum sem henta þeim t.d. list- og verkgreinum, íþróttum, móðurmáli og ensku. Nemendur Sérskólans eru í mat á sama tíma og á sama stað og allir aðrir nemendur skólans. Flestir nemendur fá tvo teymisfundi á ári en þeir geta farið upp í tíu, það fer eftir þörf. Foreldrasamtöl eru tvisvar á ári. Mikið samstarf er með foreldrum. Nemendur koma frá stóru svæði, Skólaskrifstofan LSR ákveður í hvaða skóla hver nemandi fer, foreldrar geta lagt fram óskir um skólavist. Það er þá skólastjóri viðkomandi skóla sem samþykkir eða hafnar ef ekki er pláss í skólanum, annars flyst umsóknin annað. Allir nemendur Sérskólans eiga rétt á skólaakstri en misjafnt hvort foreldrar nýti sér það. Margir koma með foreldrum og þeir sem búa næst koma gjarnan á hjóli. Nemendur Þjálfunarskólans hafa hver sinn iPad sem fer á milli heimilis og skóla. Þau nota boðskiptaappið Widgit Go (sænskt) og einnig app sem heitir Fotokalendern þar sem hægt er að taka myndir og tala inn á. Það er notað eins oft og hægt er samt ekki á hverjum degi. Bekkjarblogg er sett inn á hverjum degi.
Áhugaverð síða frá þjálfunarbekknum: www.sarskolanskulturklass.se
Þökkum góðar móttökur og áhugaverðar kynningar.
Finna Birna Steinsson og Heiða Björk Vignisdóttir
Áhugaverð síða frá þjálfunarbekknum: www.sarskolanskulturklass.se
Þökkum góðar móttökur og áhugaverðar kynningar.
Finna Birna Steinsson og Heiða Björk Vignisdóttir