Um skólann
Skólinn við skóginn er grunnskóli fyrir nemendur með þroskahömlun. Nemendum er skipt í bekkjardeildir eftir aldri. A 1-4 bekkur, B 5-7 bekkur, C 8-9 bekkur og D 10. Bekkur. Starfsmenn í skólanum eru 21 kennarar 16 þroskaþjálfar og 12 stuðningsfulltrúar, 3 stjórnendur og 2 aðstoðar stjórnendur. Hver bekkur er með 3 kennslustofur til umráða, með eldhúskrók. Þau borða hvert í sinni stofu. Útileiksvæði er mjög skemmtilegt með fjölbreyttum leiktækjum og tilboðum til afþreyingar. Við skólann starfa 3 talmeinafræðingur (2 fullri stöðu og einn 3 daga í viku) sem ráðnir eru til skólans frá tjáskiptamiðstöðinni í Hilleröd. Sjúkraþjálfarar eru einnig ráðnir frá þjónustumiðstöð Hilleröd en iðjuþjálfinn er ráðinn af skólanum. Smarttöflur í öllum stofum, dagskipulag bæði á töflu og á vegg. Góð vinnuaðstaða er fyrir kennara og stuðningsfulltrúa, vítt til veggja og gott pláss fyrir hjálpartæki. Nemendum hefur fækkað í skólanum undnafarið og plássið nýtt fyrir vinnuaðstöðu fyrir stuðningsfulltrúa.
iPad
Nota Smáforritið "GoTalk Now" í boðskiptum. Nota spjallborð þar sem nemendur heilsa hver öðrum og eiga samræður um ýmislegt, t.d. Hvað þeir voru að gera í gær. Unnið með ákveðin boðskiptaborð sem svo er tengt yfir í orðabók sem innihélt allskyns efni.
Æfa ákveðin hljóð og talmeinafræðingur kemur með myndbandsupptöku af hljóðunum áður en æfingar byrja. Til dæmis st hljóð og nemandi á að segja orð sem byrjar á því... Þau orð/myndir listuð upp
Samverustund nemenda sem nota GO talk ...varpað á smarttöfluna. Kennari stjórnar með því að ýta þar sem nem ýta því smáforritið er ekki gagnvirkt á smarttöflu. Rætt er um ýmislegt, afþreyingu, líðan og annað á milli nemenda. Í lok tímans fengu þau að velja sitt uppáhalds youtube-myndband
Æfingar í hugtökum ... Stór/lítill o.s.frv
Fjölbreytt verkefni í tengslum við sögur og tungumálakennslu
Scene page ... T.d bekkjarfélagar
Mjög gagnlegt að sjá hvernig Go Talk er notað í kennslu. Talmeinafræðingarnir tilbúnir að deila efni en ekki hefur tekist að færa á milli tækja. Unnið verður í því að fá upplýsingar frá þeim, jafnvel að biðja um skjámyndir af boðskiptaborðum sem hægt er að nota sem fyrirmynd.
Tobii
Nota Tobii communicator. Nemendur eiga sínar tölvur sem sveitafélagið útvegar þeim. Mikil samvinna milli foreldra og skóla. Kennarar bekkjanna og foreldrar útbúa boðskiptasíður með aðstoð talmeinafræðinga. Fyrir nemendur sem eru duglegir og hátt standandi nota Sonoflex. Hinir nota Tobii communicator. Mikill og góður tími gefinn til tjáskipta sérstaklega hjá talmeinafræðingnum í einstaklings tíma. Í bekkjartímanum var meira stress og minni tími gefin til að láta tjáskiptin ganga. Nemendur báru mikla virðingu fyrir hvor öðrum. Voru greinilega góðir vinir. Áttu eðlilegt unglingaspjall um stelpur. Frábært að sjá hvernig nemandi hjálpaði til þegar Jóel var á villigötum. Hvíslað í eyra, prófaðu þetta ...
Fyrir nemanda sem nýbyrjaður er að nota augnstýribúnað var samt upphafssíða með níu myndum,valmöguleikar fjölbreyttir og eitt af því sem í boði var, dúkkuleikur og nemandi átti segja hvað ætti að gerast, ... Skipta um bleiu, skipta um föt, velja liti ofl.
Roll talk
Norsk talvél. Flókin og erfiður hugbúnaður en samt að mörgu leyti mjög hentug vél. Einstaklingsmiðuð boðskiptabók með 500 síðum. Meðal annars settar upp frásagnir af áhugamálum. Hægt er að nota talgervil en einnig að taka upp eigin rödd. Nemandi sem við fengum að fylgjast með kunni vel á talvélina og hún gagnaðist honum vel í boðskiptum.
Podd bækur
Fengum góðar upplýsingar um hvar hægt er að leita sér upplýsinga um podd. Hægt er að kaupa disk með tilbúnu sniðmáti að PODD.
www.podd.dk